Er búin að vera á námskeiðinu undanfarna viku. Það margt nýtt sem ég læri þarna, t.d. var farið gróflega í persónuleikaraskanir í tengslum við geðsviðið. Eftir þá yfirferð var ég sannfærð um að ca 80% fullorðins fólks í kringum mig sé með persónuleikaröskun af einhverju tagi, þar með talin ég sjálf.
Í dag er svo síðasti dagur námskeiðsins og svo próf á laugardaginn. Í dag erum við að fara að læra að setja upp nál. Mér finnst það pínu rosalegt. Finnst það vera e-ð sem hjúkkur eða þaðan af framhaldsmenntaðra fólk gerir. Spennandi að vita hvern ég fæ að stinga í dag. Ég verð svo eflaust sjálf stungin á báðum handabökum því ég er ekkert banginn við nálar. Kannski verð ég það eftir daginn í dag.
Okkur hjónunum fer fram í hlaupunum og Heiðari Mar í labbinu. Tekur allt að 11 skref í einu. Helgi Gnýr á ekki í neinum vandræðum með hlaup og gang en ég væri alveg til í að senda hann á sundnámskeið ef það er nokkur möguleiki í sumar. Mér finnst alveg komin tími til að hann læri e-r undirstöðuatriði þar.
maí 7, 2009 klukkan 4:40 pm |
Ertu að vinna í einhverju heilbrigðistengdu núna?
maí 7, 2009 klukkan 5:38 pm |
Já hvaða námskeið ertu að tala um?
maí 7, 2009 klukkan 5:39 pm |
Var það námskeið tengt vinnunni? Þú ert sem sagt ekki að fara í þrífa fyrir fólkið heldur að hjúkra því?
maí 8, 2009 klukkan 9:14 am |
Já þetta er tengt afleysingavinnunni. Jú ég er alveg örugglega að fara að þrífa. En maður getur líka verið kallaður út á sjúkrahúsí (bæði “venjulegar” og í geðinu) og þá þarf maður að kunna ýmislegt… svona til öryggis.
maí 8, 2009 klukkan 5:08 pm |
Heilasellurnar e-ð lamaðar. Nei ég er ekki að fara að þrífa hjá fólkinu… frekar þrífa fólkið:) Aðhlynning sem sagt.
maí 8, 2009 klukkan 10:07 pm |
Haha, vonum að þú sért að nota sellurnar í eitthvað nauðsynlegra núna, eins og að vera sprenglærð fyrir prófið á morgun
Gangi þér vel!
maí 11, 2009 klukkan 1:39 pm |
Gaman að sjá fréttir
Kv. Guðrún og co.