Gleðilega páska

By frujohanna

Við höfum það mjög huggulegt þessa dagana. Mamma er í heimsókn og hefur verið í viku og Dagbjört síðan á fimmtudagskvöld. Það er bara yndislegt að hafa þær.

Í dag prófuðum við þær sem barnapíur og fórum í bíó með Helga Gný á Monsters vs Aliens. Við HG vorum að fara í fyrsta skipti á mynd í þrívídd og við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Það var líka gaman að geta gert e-ð með HG einum svona einu sinni. Og barnapíunum gekk vel. Heiðar Mar öskraði í nokkrar sekúndur þegar við fórum og svo var það búið. Svo verður önnur pössunaræfing tekin á morgun.

Ein ummæli to “Gleðilega páska”

  1. Helga Dröfn segir:

    um að gera að nota þessar kellur! :)

Skildu eftir svar