Smá

By frujohanna

Það er nú að verða soldið langur tími síðan ég bloggaði síðast. Ég er nú bara hissa á hvað fólk nennir samt að kíkja og athuga miðað við heimsóknartölurnar.

Ég er samt ekki búin að sitja aðgerðalaus en vissulega samt búin að sitja mikið. Svo mikið að ég hélt á tímabili að ég væri að fá einn af fylgikvillum þess að sitja mikið.

Eftir langt gestafrí komu Salný og Lilja Fanney að heimsækja okkur í nokkra daga. Það var voða gaman að hafa þær hjá okkur, enda ekki við öðru að búast þegar skemmtilegar konur eiga í hlut. Íris og Heiðar (foreldrar Valdimars) komu svo til okkar strax á eftir og verða hjá okkur fram til 14. ágúst og ná að hitta Dagbjörtu sem kemur sama dag. Svo ætlar mamma að koma þann 17. Með eins dags hléi eru því gestir hjá okkur frá 22. júlí til 25. ágúst. 

Helgina fyrir gesti fórum við í smá ferðalag yfir á Jótland. Enda myndi Helga Gný ekki þykja vera mikið sumarfí ef við færum ekki neitt. Við fórum til Ribe í Víkingagarð en það var frekar blautt mest allan tímann þannig að við nutum þess ekkert sérstaklega vel. Það var mjög flott leiksvæði þarna fyrir börn sem HG fannst gaman að leika sér í áður en úrhellið brast á. Svo var hægt að gera ýmislegt þarna sem hann hafði samt engan áhuga á. En það var nú samt gaman að sjá þetta.

Við keyrðum svo aðeins um Ribe og svo til Tønder þar sem við gistum í þessar tvær nætur. Daginn eftir fórum við í Danfoss Universe sem er á Als, rétt við höfuðstöðvar Danfoss. Það er svona tækni- vísinda- og orkugarður sem er alveg hrikalega skemmtilegur. Þarna naut HG sín mjög vel þó hann hafi ekkert verið að dvelja lengi við hvert og eitt. Þessi garðu er samt held ég skemmtilegastur fyrir svona 8-9 ára og eldri. 

Við keyrðum svo heim frá Tønder daginn eftir í úrhellisrigningu. Keyrslan með tvo gutta þessa helgina gekk mestan part vel. HG er núna eftir “mörg” ár fyrst að byrja að kvarta pínulítið yfir löngum leiðum og spyrja hvenær við komum. HM var voða góður á meðan hann var sofandi en þolinmæðin var minni þegar hann var vakandi. Það er ekki mikið hægt að gera fyrir fimm vikna barn (sem hann var á þeim tíma). Hann hefur ekki gaman af dóti og er ekki spenntur fyrir snuði. En þetta hafðist allt saman. 

Síðan hann var ca þriggja vikna höfum við reynt að venja hann á snuð. Hann er enn ekki sannfærður og tekur það bara mjög stutt í einu og er óttalegur klaufi við þetta. Annars hefur hann verið voða góður en snuddan gæti vissulega stundum bjargað þegar maður er að drífa sig með hann heim pirraðan í vagninum.

Á morgun verður Heiðar Mar 8 vikna. Hann hefur stækkað ótrúlega mikið og óx hrikalega hratt upp úr fyrstu fötunum sínum. Ég er alveg miður mín  yfir öllum nýju fötunum sem hann fór í sjaldan, einu sinni eða aldrei. Núna er hann þó að fara í stærðir sem hann notar í aðeins lengri tíma í einu. Í fimm vikna skoðuninni var hann 5,2 kíló og 60 cm og veður ekki mældur aftur fyrr en 3. september. Hann hefur sofið ótrúlega vel á nóttunni. Sofnar milli 10 og 12 á kvöldin og sefur oftast í 4-7 tíma í trekk, fær sér að drekka og sefur svo meira. Um daginn vaknaði hann þrisvar og það var bara rosalegt. Hann hins vegar sefur ekkert hrikalega mikið á daginn. En maður getur ekki fengið allt. Hann notar daginn aðallega í að sperra sig og brosa í staðinn.

Við erum búin að fá ógrynni af sængurgjöfum og ætla að leyfa mér þann dónaskap í bili að þakka ekki hverjum og einum strax fyrir og nota tækifærið hér og þakka öllum (sem lesa hér) fyrir okkur. Ég er of nísk til að hringja tugi þakkarsímtala til Íslands. En ég er samt mjög þakklát og er að hugsa um að fara að leita að fólki á skype-inu. 

Næsta miðvikudag verður fyrsti skóladagur hjá HG. Skólinn verður í tvo tíma þann daginn og við verðum ekki langt undan á meðan. Ég held að hann sé soldið spenntur fyrir þessu og ég vona að hann verði ekki fyrir vonbrigðum. Við erum búin að kaupa ægilega fína Lego skólatösku sem er næstum jafn stór og hann sjálfur og svo fékk hann nýtt pennaveski frá ömmu sinni og afa. Ég kvíði því bara mest núna að koma á góðri rútínu eftir óreglu sumarsins.

Þar sem ég hef verið einstaklega ófélagslynd þá ákvað ég að ég skyldi drífa mig í svona mömmuhóp (mødregruppe) eins og tíðkast hér í Danmörku. Þá eru ca fimm mömmur sem hittast heima hjá hverri og einni með börnin sitt á hvað og spjalla í 1-2 tíma. Við erum búnar að hittast tvisvar og svo hitti ég eina á kaffhúsi í síðustu viku þar sem hinar voru fjarri í sumarfríi. Mér líst nú ágætlega á þetta en það á nú eftir að koma meiri reynsla á þetta. Soldið spes samt að mæta allt í einu heim til ókunnugs fólks.

Eins og þegar HG var lítill horfi ég nú næstum á allt í sjónvarpinu, a.m.k. með öðru auganu meðan unginn er á brjósti. DR hefur alveg slegið í gegn í sumar með ævafornum þáttum eða myndum eins og Return to Eden sem ég horfði líka á þegar ég var ca 8 ára, James Bond og Hróa Hattar þáttum sem voru líka sýndir í fyrra. Þegar HG var lítill þá hins vegar var ég með næturdagskránna á Skjá einum  á hreinu.

Ég reikna ekki með mikilli virkni hérna á næstunni en það kemur fyrir að Valdimar setji myndir inn á hliðarsíðuna sína fyrir áhugasama.

Ætla að segja þetta gott í bili.

6 svör to “Smá”

  1. Dagbjört segir:

    Þetta var nú skemmtilegt. Var einmitt að hugsa um það í gær að ég ætti að hóta þér því að fara ekki fyrst á síðuna þína á bloggrúntinum mínum ef þú bloggaðir ekki fljótlega – en fannst það svo of gróft. Þú hefur skynjað þessar ljótu hugsanir mínar ;) Hlakka til að sjá ykkur, eftir viku verð ég á flugvellinum :D

  2. Guðrún J segir:

    Er alltaf að kíkja eftir fréttum ;) Fyndið hvað lýsingin á honum HM er nákvæmlega eins og OI var. Engin dudda og ekki sofið mikið á daginn. Ég þorði aldrei langt frá heimilinu með vagninn því einu sinni lenti ég í því að þurfa að spæna upp Áslandið neðan úr bæ því drengurinn var svo óánægður í vagninum…. (en það lagaðist nú eftir því sem maður varð eldri og gat þá setið uppréttur og horft út og svonna). Frábært að heyra fréttir af ykkur :) Bið að heilsa öllum strákunum þínum!

  3. Salný segir:

    Vá bara blogg… fátt sem hefði getað glatt mig meira. Gaman að fá fréttir. kkv. Salný

  4. Steinunn Þóra segir:

    Húrra!

  5. Úrsúla Manda segir:

    En gaman að fá fréttir af ykkur. Gott að Heiðar Mar skuli dafna svona vel og já stóri bróðir bara að fara í skóla!! Hafið það gott öllsömul. Kveðja frá Neskaupstað.

  6. Helga Dröfn segir:

    Ja hérna. Fullt af bloggum.
    Frábært hvað allt gengur vel. Bið að heilsa Dagbjörtu minni :) og njótið hennar vel!

Skildu eftir svar