Nú er hlýja sumarveðrið yfirstaðið og komið venjulegt kalt gott vorveður. Ég hefði alveg getað notað úlpuna mína þegar ég hjólaði áðan í vaxtarsónarinn. En þegar maður hefur einu sinni gengið frá vetrarúlpunni þá tekur maður hana ekki fram aftur, sama hversu kalt verður, “thats my filosophy”.
Jæja sónarkonan reiknaði út að barnið væri núna 3274 gr svo það er nú þegar búið að ná fæðingarþyngd margra barna, en á samt eftir örugglega fjórar vikur þarna inni að vaxa ennþá meira, þó ég láti mig dreyma um að það komi fyrr.
Það verður sem sagt pottþétt verkfall frá og með næstu viku og því er spáð að það vari í a.m.k. tvær vikur. Það er svosem ekkert mál að hafa HG heima. Ég er bara mest leið yfir að hann missi þann félagsskap sem hann hefur á leikskólanum og þarf svo mikið á að halda. En reyndar er hann nú farinn að fara hérna út í garðinn og leika soldið við krakkana í næsta stigagangi. Í gær sinnaðist okkur aðeins og hann fór inn í herbergið sitt. Svo mætti hann fram í gang og sagði fúll og ákveðinn “ég ætla að fara út!” Við erum aðeins að venjast þeirri tilhugsun að hann GETI farið einn út í garð en það er mjög erfitt að slíta sig frá gluggunum. Við erum jú í stórhættulegum útlöndum.
maí 14, 2008 klukkan 11:56 am |
heyrðu.. alveg bráðsniðugt millistig svona vesti.. áskotnaðist þetta líka dýrindis dúnvesti þegar ég varð 30 ára og það virkar mjög vel þegar maður vill ekki nota úlpuna en hitastigið er enn að sveiflast frá 0°-20° á ca. tveggjadaga fresti.
Já og mér þykja nú sónarkonurnar í DK nokkuð nákvæmar.. 3274 gr.. þetta var ekki grín er það?!? held að 3250 hefði nú verið látið duga hér, jafnvel 3200. Hef nú séð sónarnum skeika svo hrapalega að ég myndi taka þessar tölur með fyrirvara þó þær bendi til að krílið hafi það gott sem er gott ekki satt. kv. Salný
maí 14, 2008 klukkan 12:40 pm |
Og enn bólar ekkert á bumbumyndum. Þú bara hlýtur að vera svolítið myndarlega með 3274 gr. + fylgihluti framan á þér.
maí 14, 2008 klukkan 12:42 pm |
Jiii ég var einmitt í þessum pælingum í gær, hvernig þetta væri þegar Ingibjörgu færi ALEIN út. Leikvöllur auðvitað hérna beint fyrir neðan, en ég hugsa að ég yrði örugglega límd við glugggan svona fyrst til að byrja með allavega. Alveg sama hvort maður búi í bæ eða stórborg, maður veit aldrei!!
maí 15, 2008 klukkan 2:26 am |
Sammála Salnýju, þessi %$&#/# vaxtarsónar sem hefur platað mig og fleiri undanfarið – og þannig að börnin eru sögð stærri en þau eru. Trúðu bara ljósmóðurinni frekar
Svo máttu fara af stað í næstu viku tæknilega séð.
Ég fór í fyrsta skipti í sumarjakka í dag þetta árið. Mér varð ekkert kalt. Ég var ekki heldur með trefil.
Steinunn: Jú Jóhanna er með voðalega fína og sæta bumbu þessa dagana. Sá það með eigin augum á skype
maí 15, 2008 klukkan 10:18 am |
Hvernig væri nú að smella einni bumbumynd inn á netið áður en krílið kemur
Ég á það til að miða við 38 vikurnar þar sem OI lét sjá sig eftir 38 vikur og 2 daga
maí 15, 2008 klukkan 2:23 pm |
Já mynd mun örugglega koma… bráðum. Oh Guðrún þú ert örugglega sú heppnasta.
maí 16, 2008 klukkan 11:37 am |
Hæ elskurnar!
Já nákvæmur er hann.. Dagbjartur var nú metinn kílóinu léttari þegar við mættum á fæðingardeildina heldur en hann svo var þegar hann kom í heiminn:) En ég vona að það gerist nú ekki oft! Gangi þér vel síðustu metrana og mikið væri nú gaman að sjá mynd af ykkur:)
kram
maí 16, 2008 klukkan 12:05 pm |
Þá hefur nafni minn orðið til þess að samstarfskonurnar fengu köku frá þeirri sem mat hann svona léttan