Ég er búin að uppgötva hrikalega góðan ís, svona tyrkisk peber is. Hann er samt soldið vondur en góður vondur.
Það lítur út fyrir að HG fái að vera enn meira heima frá og með næstu helgi þar sem leikskólakennararnir hafa hafnað sínum samningi og byrja í verkfalli á mánudaginn. Það er auðvitað óþolandi að það sé ekki hægt að finna peninga til að borga fólki í þessum grundvallarstéttum almennileg laun þegar hægt er að halda úti árásarher í fjarlægum löndum og halda uppi konugsfjölskyldu með öllu því rugli sem því fylgir. ARG.
Ljósmæðurnar eru enn í verkfalli ásamt flestum umönnunarstéttunum sem þýðir að ef það verður ennþá verkfall þegar unginn lætur sjá sig og EF fæðingin gengur vel verðum við útskrifuð eftir fjóra tíma. En eftir síðustu reynslu mína þá reikna ég ekki beinlínis með því.
Í morgun fór ég til ljósmóður. Eftir að hafa beðið í klukkutíma fór ég nú aðeins að spyrjast fyrir en þá hafði ég bara fengið tíma en ritarinn ekkert skráð hann neitt nánar. Þannig að mér var skotið inn í kaffinu hjá henni greyinu. Ég náði þó ekkert að láta mér leiðast mikið þar sem ég hitti eina sem var á fæðingarnámskeiðinu þannig að við spjölluðum lengi. En það leit allt bara vel út. Hún skaut á að það væri núna ca 2900 gr. Spennandi að sjá hversu vel það stenst því ég er að fara í vaxtarsónar í fyrramálið. Svo á ég að mæta aftur til ljósu eftir tvær vikur.
maí 13, 2008 klukkan 6:42 pm |
Ég get ómögulega skilið að ís sé gott vondur. Enn eitt sem ég þarf að gera þegar ég kem til ykkar – smakka gott vondan ís
Útskrifuð eftir 4 tíma! Það er ekki mikið… Geturðu ekki leigt Salnýju af FSN í eins og 5 vikur?
maí 13, 2008 klukkan 9:59 pm |
ummm… ís. Spennt að smakka góðan vondan ís. Er sammála Dagbjörtu, finnst nú frekar lítið að hafa fyrri keisara inni í 4 tíma eftir fæðingu þó að gangi vel (sem það mun gera, 1. skrefið er að trúa því). veit að sængurlegukerfið í DK er ekki til fyrirmyndar, fáir valkostir og lítil eftirfylgni. kv. Salný
maí 14, 2008 klukkan 8:16 am |
Auðvitað vildi ég bara geta haft ykkur báðar hérna hjá mér, mínar helstu vinkonur og ráðgjafa á þessu sviði:)
Og þið getið sko alveg byrjað að hlakka til strax að smakka ísinn hann er hrikalega góður. En BESTI ísinn er á Il Gusto gelateria (sérstaklega fyrir þig Dagbjört og aðra ítölskumælandi að smjatta á þessu fallega orði). Þangað fer maður svona spari þegar góðir gestir mæta á svæðið.
maí 14, 2008 klukkan 11:58 am |
nohhh. maður er bara kominn með fiðringinn. (tel mig sem sagt til sparigesta) bkv. Salný