Í staðinn fyrir bloggið mitt er komin e-r hræðileg bílaleigusíða. Ég soldið pirruð yfir því. En strax komin góð ástæða fyrir að færa sig hingað.
Helgi Gnýr bað svo fallega um frí í morgun og langaði greinilega í smá hvíld frá leikskólanum. Þannig að við erum bara heima í dag. Hann að leika og ég að reyna að gera e-ð gagn. Þvo þvott, þrífa og pakka. Reikna samt ekki með neinum gríðarlegum afköstum í ljósi reynslunnar síðastliðna tvo mánuði.
Síðastliðna tvo mánuði er ég nefnilega búin að vera hálf ofan í klósettinu meira og minna hálfan daginn. Restina af deginum að ná andanum og líða illa. Svona er nú gleðin mikil við að reyna að böggla nýju lífi í þennan vonda heim. Ég held ég hafi aldrei kynst jafn leiðinlegri manneskju og mér sjálfri undanfarið. Enda er ég búin að gera mitt besta til að angra ekki fólk með félagsskap mínum í hinum ýmsu myndum.
Þannig er nú það.
desember 5, 2007 klukkan 2:44 pm |
Húrra! Nú hlakka ég enn meira til að fá ykkur heim í jólafrí. Þú mátt sko koma og hanga hjá mér og mínu klósetti eins og þú villt. Ég skal meira að segja reyna að vera svolítið almennileg við þig á milli ferða.
Til hamingju öllsömul.
desember 5, 2007 klukkan 6:02 pm |
Já svoleiðis aldeilis til lukku öllsömul þetta eru gleðifréttir.
Kveðja, Bryndís.
desember 6, 2007 klukkan 2:30 pm |
Svona eins og Áramótaskaupinu var stolið hérna um árið
Jei nú get ég sent vinkonum mínum linka hingað í gríð og erg og leyft þeim að lesa þessa skemmtilegu lýsingu á ástandi þínu.
Gangi ykkur vel í öllum flutningsverkunum.
desember 6, 2007 klukkan 7:04 pm |
Nú áttu tvö blogg. Það fer að vera flókið að fylgjast með þér. Þ.e.a.s. ef þú ferð nú að verða duglegri að skrifa – sem mér finnst algjört möst.
desember 6, 2007 klukkan 8:15 pm |
Ég kemst nú bara ekkert inn á hitt þannig að ég skrifa væntanlega ekkert meira þar fyrst ég er byrjuð hér. Ég væri nú samt alveg til í að eiga afrit af því öllu því mér hefur fundist ágætt að fletta upp í því en ég bara kann ekkert á svoleiðis.
desember 7, 2007 klukkan 1:19 pm |
Ég er í sjokki! Hafði ekki hugmynd um að þú værir ólétt! Innilega til hamingju. Hvenær áttu svo von á þér????
desember 7, 2007 klukkan 10:36 pm |
Innilega til hamingju og velkomin á besta bloggsvæðið
desember 8, 2007 klukkan 12:04 am |
Takk Hildigunnur ég er svo glöð að vera komin hingað. Svo er svo fínt allt stýrikerfið. Nú get ég loksins forvitnast um hvað það eru margir sem skoða hjá mér og hvaðan þeir koma.
Nína, fyrripartinn í júní ef allt gengur að óskum.